Faggilding er formleg viðurkenning stjórnvalda á því að aðili sé hæfur til að vinna tiltekin verkefni, s.s. að prófa eiginleika efna, skoða ástand tækja og verksmiðja eða votta stjórnunarkerfi.
Faggiltar stofur starfa eftir ströngum kröfum alþjóðlegra staðla og hafa starfað hérlendis á sviði bifreiðaskoðana, matvælaskoðana, rafskoðana, skipaskoðana og löggildinga mælitækja auk markaðsgæslu.
Markmið hópsins er að treysta í sessi faggilta skoðunarstarfsemi sem fyrsta valkost í eftirliti hér á landi.