Forsíða / Fræðsla

Fræðsla og hæfniþróun – lykill að árangri

SVÞ leggja áherslu á að efla menntun og hæfniþróun í verslunar- og þjónustugreinum, vinna að mótun grunn- og framhaldsmenntunar með tilliti til þarfa atvinnulífsins og styðja við starfs- og endurmenntun starfsfólks.

Ræktum vitið

Samstarfsverkefni SVÞ, VR og LÍV sem hvetur fyrirtæki og starfsfólk í verslun og þjónustu til að leggja aukna áherslu á sí- og endurmenntun. Með markvissri símenntun geta fyrirtæki styrkt samkeppnishæfni sína, aukið starfsánægju og byggt upp vinnustaði sem eru betur í stakk búnir til að takast á við breytingar.

Fyrsta októberátakið 2026

270
virkir þátttakendur
26
virkir vinnustaðir
2.842
skráð lærdómsverkefni
4.077
klukkustundir í sí- og endurmenntun

ELKO, Danól og Rue de Net hlutu viðurkenningar fyrir árangur í átakinu.