Forsíða / Hagsmunagæsla

Hagsmunagæsla er okkar fag

Hlutverk SVÞ er að gæta hagsmuna verslunar og þjónustu á Íslandi. Við höfum áralanga þekkingu og reynslu og vitum hvað þarf til að koma málunum áfram.

Þinn málsvari

Eitt fyrirtæki er illa í stakk búið til að hafa áhrif á rekstrar-, laga- eða efnahagsumhverfi. Mörg fyrirtæki sem tala einni röddu eru mun sterkari saman.

  • Við erum rödd íslenskrar verslunar og þjónustu gagnvart stjórnvöldum, opinberum aðilum, fjölmiðlum og almenningi.
  • Við veitum stjórnvöldum og Alþingi umsagnir vegna setningar laga og reglugerða sem varða aðildarfyrirtækin.
  • Við fundum með fulltrúum stjórnarráðsins og fastanefndum Alþingis til að tryggja að skilaboðin nái í gegn.
  • Við gætum réttar félagsmanna gagnvart opinberum stofnunum og stjórnvöldum.
  • Lögfræðingur SVÞ hefur m.a. kært ákvarðanir og athafnir opinberra aðila til úrskurðaraðila á stjórnsýslustigi í nafni samtakanna og aðildarfyrirtækja.

Umsagnir SVÞ

Umsagnir SVÞ og undirsamtaka um frumvörp, reglugerðir og áform stjórnvalda.

41 umsagnir
  1. ETS: SVÞ kalla eftir jöfnum samkeppnisskilyrðum í sjóflutningum til og frá ÍslandiSVÞ – Samtök verslunar og þjónustu hafa skilað umsögn á umsagnagátt framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um fyrirhugaðar breytingar á viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir, ETS. Samtökin styðja markmið kerfisins um minni losun en…
  2. SVÞ kalla eftir skýrara sjálfstæði og fjárhagslegum aðskilnaði póstmála hjá ByggðastofnunSVÞ – Samtök verslunar og þjónustu gera athugasemdir við frumvarp til breytinga á lögum um Byggðastofnun og telja að skýra þurfi sjálfstæði stofnunarinnar í póstmálum, vald stjórnar og ráðstöfun fjármuna sem ætlaðir eru til verkefna á…
  3. Húsaleigulög: SVÞ leggjast gegn leigubremsu og vilja atvinnuhúsnæði undanskiliðSVÞ – Samtök verslunar og þjónustu hafa skilað umsögn um frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum (reglubundnar breytingar á leigufjárhæð). Samtökin leggjast gegn því að frumvarpið verði samþykkt í núverandi mynd og telja…
  4. Fjárlög 2027: SVÞ vara við áhrifum skattahækkana á heimili og atvinnulífSVÞ – Samtök verslunar og þjónustu hafa skilað umsögn um fjárlagafrumvarp ársins 2027 og frumvarp um skattabreytingar vegna fjárlaganna. Samtökin telja markmið um hallalaus fjárlög jákvætt en leggja áherslu á að aðlögun ríkisfjármála…
  5. Skattar og gjöld: SVÞ leggja áherslu á fyrirsjáanleika við bindandi álitSVÞ – Samtök verslunar og þjónustu hafa skilað umsögn um áform um breytingar á ýmsum lögum um skatta og gjöld. Samtökin vara við því að lengri afgreiðslufrestur ríkisskattstjóra og þrengri skilyrði fyrir bindandi álitum geti aukið…
  6. Markaðseftirlit: SVÞ leggja áherslu á meðalhóf og áhættumiðað eftirlitSVÞ – Samtök verslunar og þjónustu hafa skilað umsögn um áform um innleiðingu markaðseftirlitsreglugerðar ESB. Samtökin fagna því að ekki sé fyrirhugað að ganga lengra en lágmarkskröfur reglugerðarinnar segja til um og leggja áherslu á…
  7. Kílómetragjald: SVÞ kalla eftir réttari álagningu og auknum fyrirsjáanleikaSVÞ – Samtök verslunar og þjónustu hafa skilað umsögn um áform um breytingar á lögum um kílómetragjald á ökutæki. Samtökin fagna fyrirhuguðum úrbótum, meðal annars heimildum til að leiðrétta ranga álagningu, sveigjanlegri skráningu…
  8. Neytendasamningar: SVÞ leggja áherslu á skýrar reglur og meðalhófSVÞ – Samtök verslunar og þjónustu hafa skilað umsögn um áform um breytingar á lögum um neytendasamninga. Samtökin leggja áherslu á að skýrar og gegnsæjar reglur efli traust í viðskiptum og að innleiðing EES-gerða feli ekki í sér…
  9. SVÞ styður einföldun byggingarreglugerðar og leggur áherslu á faggilt eftirlitSVÞ taka jákvætt í áform stjórnvalda um að einfalda byggingarreglugerð og breyta fyrirkomulagi byggingareftirlits. Samtökin leggja áherslu á að þegar eftirlit færist í auknum mæli til óháðra skoðunarstofa verði tryggt að þær séu…
  10. SH: Tryggja þarf jafnræði og sanngjarna kostnaðarskiptingu í stafrænni heilbrigðisþjónustuSamtök heilbrigðisfyrirtækja (SH) taka jákvætt í markmið frumvarps um stafræna heilsu og telja löngu tímabært að taka stafræn málefni heilbrigðisþjónustunnar föstum tökum. Samtökin leggja þó áherslu á skýrari varnagla svo einkareknir…
  11. SVÞ styður aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi og kallar eftir skýrari réttarvernd fyrirtækjaSVÞ fagna áformum stjórnvalda um markvissari aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi og taka undir markmið um skilvirkari afbrotavarnir, rannsóknir og saksókn. Samtökin leggja jafnframt til breytingu sem styrki stöðu fyrirtækja og…
  12. SVÞ: Samgöngur, verslun og þjónusta lykilforsendur öflugrar byggðaþróunarSVÞ taka undir áherslur hvítbókar um byggðamál um mikilvægi öflugs atvinnulífs, traustra innviða og góðs aðgengis að þjónustu. Samtökin leggja sérstaklega áherslu á að samgöngur, vöruflutningar, rekstrarskilyrði verslunar og aðgengi að…

Nefndir og ráð

Fulltrúar SVÞ í nefndum, ráðum og stjórnum, samkvæmt yfirliti samtakanna frá 2023.

23 nefndir og ráð
Umhverfisviðurkenning atvinnulífsins
Rúna Magnúsdóttir, SVÞ
Faggildingarráð
Árni Kristinsson, BSI ÍslandBenedikt S. Benediktsson, SVÞ
Fagráð um hafnarmál
Birna Ragnarsdóttir, Samskip hf.Eyþór H. Ólafsson, Eimskipafélag Íslands hf.
Fagráð um siglingamál
Birna Ragnarsdóttir, Samskip hf.
Fagráð um umferðarmál
Erla María Árnadóttir, Eimskipafélag Íslands hf.
Framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins
Jón Ólafur Halldórsson, Marga ehf.Guðrún Jóhannesdóttir, Kokka ehf.Gunnar Egill Sigurðsson, Samkaup hf.Eggert Þór Kristófersson, Festi hf.
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins
Gunnur Líf Gunnarsdóttir, SamkaupRagna Vala Kjartansdóttir, SVÞ (varam.)
Lyfjastofnun
Kjartan Örn Þórðarson, Lyf og heilsa ehf.
Heilbrigðisnefnd Reykjavíkur
Ólafur Jónsson, Skeljungur hf.
Menntanefnd SA
Ragna Vala Kjartansdóttir, SVÞ
Samstarfsráð Matvælastofnunar
Bjarni Friðrik Jóhannesson, Krónan
Starfsgreinaráð samgöngu-, farartækja- og flutningagreina
Freyja Eiríksdóttir, Samskip hf.
Starfsgreinaráð skrifstofu- og verslunargreina
Gunnur Líf Gunnarsdóttir, SamkaupSigurlaug Þóra Kristjánsdóttir, Rekstrarvörur ehf.Kristófer Már Maronsson, Aha
Starfshópur um aðgerðir gegn matarsóun
Gréta María Grétarsdóttir, Krónan
Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks
Björg Ársælsdóttir, N1Ragna Vala Kjartansdóttir, SVÞ
Stjórn EuroCommerce
Andrés Magnússon, SVÞ
Stjórn GS1
Bjarni Friðrik Jóhannesson, Festi hf.
Stjórn Rannsóknarseturs verslunarinnar
Edda Blumenstein, BYKO
Stjórn Úrvinnslusjóðs
Benedikt S. Benediktsson, SVÞ
Ráðgjafarnefnd um opinberar eftirlitsreglur
Benedikt S. Benediktsson, SVÞ (varamaður skipaður af SA)
Umhverfismerkisráð Íslands
Gunnur Líf Gunnarsdóttir, Samkaup ehf.
Starfshópur um alþjónustu í póstdreifingu
Benedikt S. Benediktsson, SVÞ
Greiðsluráð Seðlabanka Íslands
Benedikt S. Benediktsson, SVÞ