Forsíða / Faghópar

Flutningasvið

Flutningasvið SVÞ var stofnað í ársbyrjun 2006. Hlutverk þess er að halda utan um og sinna hagsmunamálum flutningagreinarinnar á landi, sjó og í lofti.

Stofnað 2006

Stofnaðilar voru fyrirtæki innan Sambands íslenskra kaupskipaútgerða; Eimskip, Samskip, Nesskip og Nes – skipafélag, auk Icelandair Cargo, Íslandspósts, Olíudreifingar og Skeljungs.

Öll aðildarfyrirtæki SVÞ sem starfa í hvers kyns vöruflutningaþjónustu eða hafa ríka hagsmuni af þróun greinarinnar geta gerst aðilar að flutningasviðinu.

Markmið

  • Að lög og reglugerðir séu ekki óeðlilega eða óþarflega íþyngjandi fyrir starfsemi greinarinnar.
  • Að auka almenna þekkingu á hlutverki og mikilvægi vöruflutninga fyrir atvinnulíf og samfélag.
  • Að auka framboð og eftirspurn eftir menntun í flutningagreininni.
  • Að skapa aðilum hagræði með faglegu samstarfi.
  • Að skapa samstarfsvettvang til hagsmunagæslu fyrir flutningsaðila innan SVÞ.