Forsíða / Um SVÞ
SVÞ eru málsvari atvinnurekenda í verslunar- og þjónustufyrirtækjum. Samtökin voru stofnuð í október 1999 við sameiningu nokkurra samtaka í verslun og þjónustu og eru hluti af Samtökum atvinnulífsins.
Samtökin vinna að almennum, sameiginlegum hagsmunamálum aðildarfyrirtækja og stuðla að framförum í verslun og þjónustu, bættum starfsskilyrðum, aukinni arðsemi og samkeppnishæfni.
Samtökin standa fyrir upplýsingamiðlun innan og utan samtakanna um málefni sem varða aðildarfyrirtækin og fyrir fræðsludagskrá fyrir félagsmenn. Þau þjónusta jafnframt aðildarfyrirtæki á sviði kjaramála í samstarfi við Samtök atvinnulífsins.
Starfsfólk skrifstofunnar sinnir margvíslegri þjónustu við félagsmenn, bæði einstök fyrirtæki og starfsgreinina í heild. Sérhæfðum málum, eins og lögfræðilegum álitamálum um kjarasamninga, er vísað til lögfræðinga Samtaka atvinnulífsins. Öll þjónusta er innifalin í félagsgjöldum.