Forsíða / Um SVÞ / Umhverfisstefna

Umhverfisstefna SVÞ

Meginmarkmið stefnunnar er að SVÞ séu aðildarfyrirtækjum og atvinnulífinu öllu góð fyrirmynd í umhverfismálum og sjálfbærni, og að leiðbeina, fræða, hvetja og styðja aðildarfyrirtæki í málaflokknum.

Markmið

  1. Efla umhverfisvitund starfsfólks og aðildarfyrirtækja og hvetja þau til að vera fyrirmynd og hvatning fyrir aðra í íslensku atvinnulífi.
  2. Endurnýta og endurvinna það sem fellur til í rekstrinum og farga öðru á viðeigandi hátt.
  3. Halda orkunotkun í lágmarki og nýta umhverfisvæna orkugjafa.
  4. Halda mengun í lágmarki og útrýma henni í framtíðinni.
  5. Innkaup samtakanna taki mið af umhverfissjónarmiðum og sjálfbærni.
  6. Efla umhverfisvitund SVÞ-félaga og veita þeim hvatningu og leiðbeiningar til að gera rekstur sinn umhverfisvænan og sjálfbæran.

Leiðir að markmiðum

Gerðar eru aðgerðaáætlanir til eins árs í senn, annars vegar fyrir innra starf skrifstofu SVÞ og hins vegar fyrir leiðbeiningu, fræðslu, hvatningu og stuðning við aðildarfyrirtæki.

Ábyrgð

Framkvæmdastjóri SVÞ ber ábyrgð á framkvæmd stefnunnar en stjórn fylgist með framkvæmdinni og endurskoðar hana reglulega.

Eftirfylgni og endurskoðun

Stefnan er endurskoðuð á tveggja ára fresti, eða oftar ef þörf krefur. Árlega gerir framkvæmdastjóri stjórn grein fyrir stöðu umhverfismála.

Samþykkt af stjórn 8. október 2020.